Hvers vegna að gerast meðlimur?
Með því að gerast félagi í ICOM verður þú þátttakandi í hinum alþjóðlega safnaheimi og hluti af virku tengslaneti 40.000 safna og safnmanna frá 141 landi. Hvort sem að það sé í gegnum einstaklings, nema eða stofnanaaðild veitir aðild aðgang að alþjóðadeildum og vettvangi fyrir skoðanaskipti, vísindalegt samstarf og umræðu um framtíð safna. Hægt er að fræðast um ICOM á alþjóðlegri heimasíðu félagsins.
Ávinningur:
- ICOM ráðstefnur og afsláttur af öðrum ráðstefnum sem haldnar eru í samstarfi við ICOM.
- Faglegar útgáfur og önnur sérfræðigögn.
- Jafningjafræðsla, sí- og endurmenntun á vegum ICOM.
- Aðildarkort (sem veitir afslátt og aðgang að söfnum á heimsvísu).
Inntökuskilyrði:
- Faglegir núverandi starfsmenn safna og þeir sem eru komnir á eftirlaun.
- Sérfræðingar á sviði safnastarfs.
- Þeir sem fást við kaup og sölu á menningarverðmætum í hagnaðarskyni, þar með talin listaverk, náttúru- og vísindasýni geta ekki gerst aðilar að ICOM.
- Nemar sem eru skráðir í nám á sviði safna.
- Stofnanir geta sótt um aðild ef þær uppfylla siðareglur ICOM.
Til að sækja um aðild þarf að:
- Fylla út rafræna umsókn um aðild.
- Stjórn Íslandsdeildar fjallar um umsóknina. Samþykktar umsóknir fara áfram til höfuðstöðvanna í París.
- Umsækjandi greiðir félagsgjöld og fær í kjölfarið félagskort sem veitir m.a. aðgang að söfnum um allan heim og ráðstefnum á vegum félagsins, rétt til að sækja um styrki á vegum félagsins auk fréttabréfs ICOM.
- Íslandsdeild sendir aðildarkort með ICOM númeri um leið og þau berast.
- Greiðsluseðill vegna félagsgjalda er sendur til umsækjenda. Þegar félagsgjöld hafa verið greidd er límmiði með staðfestingu fyrir greiðslu á árinu sendur umsækjanda.
- Félagsaðild gildir í eitt ár og er miðað við almanaksár.
Umsóknarferli:
- Rafræn umsókn birtist í gagnagrunni ICOM sem kallast IRIS.
- Stjórn Íslandsdeildar fjallar um umsóknina og sendir samþykkta umsókn áfram til höfuðstöðvanna í París.
- Umsækjandi fær greiðsluseðil í heimabanka, greiðir félagsgjöld og fær í kjölfarið félagskort og límmiða með ártali sem veitir m.a. aðgang að söfnum um allan heim og ráðstefnum á vegum félagsins, rétt til að sækja um styrki á vegum félagsins auk fréttabréfs ICOM.
- Félagsaðild gildir í eitt ár og er miðað við almanaksár.
- Límmiðar með uppfærðu ártali eru sendir út ár hvert eftir að greiðsla félagsgjalda hefur borist Íslandsdeild ICOM.