Íslandsdeild ICOM
ICOM stendur fyrir International Council of Museums eða Alþjóðaráð safna. Það er samstarfsvettvangur safna og fagfólks safna, sem vinnur að því að varðveita, viðhalda og miðla til alþjóðasamfélagsins náttúru- og menningararfleið heimsins, huglægri sem hlutlægri, í samtíð sem framtíð. ICOM eru frjáls félagasamtök sem hafa komið á fót faglegum viðmiðum og siðareglum fyrir safnastarfsemi, stuðlað að þjálfun og þekkingarsköpun, tekið á málefnum og aukið menningarvitund almennings í gegnum alþjóðlegt tengslanet og samstarf.
Íslandsdeild ICOM var stofnuð árið 1985 með það að markmiði að efla faglegt safnastarf á Íslandi og auka samskipti fagfólks safna hér á landi við starfsfélaga víða um heim. Þáttur í þeirri viðleitni var útgáfa samþykkta og siðareglna ICOM á íslensku árið 1997 og endurskoðuð útgáfa af siðareglunum frá árinu 2004, sem kom út árið 2006. Íslandsdeild ICOM stóð einnig fyrir útgáfu handbókarinnar Söfn á Íslandi árið 1993 og . Fyrir ágóða af útgáfu bókarinnar var stofnaður útgáfu- og ferðasjóður sem er í vörslu Íslandsdeildar ICOM. Árið 2015 kom út ný útgáfa af siðareglunum, auk sérstaks námsefnis.
Stjórnarmeðlimir hafa á hverju ári tekið þátt í fundum samtakanna í París en þar eru höfuðstöðvar ICOM, nátengdar Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og er ICOM ráðgefandi fyrir hana. Stjórnarmeðlimir hafa einnig tekið þátt í árlegum fundum ICOM Nord, svæðissamtökum Norðurlandanna.
Félögum gefst kostur á að sækja um útgáfu- og ferðastyrki.
Sjá samþykktir sjóðsins.
Stjórn Íslandsdeildar ICOM skipa:
| Formaður: | Guðný Dóra Gestsdóttir |
| Ritari: | Ólöf Gerður Sigfúsdóttir |
| Gjaldkeri: | Anna Friðbertsdóttir |
| Meðstjórnendur: | Sigurður Trausti Traustason |
| Hólmar Hólm |
Senda póst til Íslandsdeildar ICOM (e-mail ICOM Iceland)
Fundargerðir aðalfundar Íslandsdeildar ICOM
Aðalfundur 2018
Íslandsdeild ICOM er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu